Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Færi mig aftur

28. febrúar 2007 klukkan 13:13
fer aftur yfir á http://tolvunord.blog.is... nú eða þá að þið kíkið bara á http://www.tolvunord.net það vísar alltaf á virka bloggið mitt Ullandi
Þórmundur Helgason

Hvað á maður að gera

24. febrúar 2007 klukkan 12:07
Enski boltinn... uss maður.

Ég held með Man Utd og hún Rósa mín og öll hennar fjölskylda heldur með Liverpool.  Minni fjölskyldu gæti ekki verið meira sama.

Ég keypti fyrstu treyjuna fyrir drenginn okkar úr ensku deildinni.  Tengdó gaf gaurnum svo Liverpool búning í 1. árs afmælisgjöf.

Hvað á ég að gera Gráta ...

Vignirinn minn

veit ég muni aldrei getað haldið með Liverpool... þannig að við feðgarnir verðum þá bara erkifjendur á vellinum.
Þórmundur Helgason

Þolpróf...

20. febrúar 2007 klukkan 11:08

Já það var þolpróf Bootcampinu góða í gær.  Uppistaðan í þessu þolprófi eru þær æfingar sem teknar eru í Elítuprófinu.

Niðurstaðan var eftirfarandi

3 km hlaup - 14 mínútur
 - Þarf að bæta mig um ca 1 mínútu til að ná 2,5 km á 12 mínútum.


Armbeygjur á 2 mínútum - 66 stk.

 - Þarf að ná 14 í viðbót á þessum tíma


Sit-ups á 2 mínútum - 69 stk.

 - Þarf að ná 11 í viðbót á þessum tíma


Froskar með hoppi á 2 mínútum - 35 stk.

 - Þarf að ná hvorki meira né minna en 20 í viðbót á þessum tíma


Við gerðum engar upphýfingar en ég tók þær sjálfur eftir æfingu og ég næ alveg heilum 4... vantar bara 4 uppá...

Þórmundur Helgason

Bootcamp... Elítan

16. febrúar 2007 klukkan 11:16
Já það verður elítupróf í Bootcamp þann 31.03.07.  Ég ætla að mæta og taka þetta með stæl, og vegna þess þá verður öllu sukki slúttað þangað til þessum áfanga er lokið.  Eða næstum öllu - var víst búinn að lofa að fá mér í glas með strákunum um helgin þegar við tökum Bages, en fæ mér þá gin í staðinn fyrir bjórinn svona til að draga aðeins úr kaloríuinntökunni.

Allavega þá hljómar prófið einhvernvegin svona:

1. Hlaupa 2,5+ km á innan við 12 mín
-hlaupinn er 250m hringur á Miklatúni og þarf því að klára að lágmarki 10 hringi
2. 80+ armbeygjur á 2 mín
-brjóstkassinn þarf að snerta hnefa dómarans og læsa þarf olnbogum uppi til að fá löglega armbeygju. Hvíla má í armbeygjustöðu og hrista hendurnar en ekki er leyfilegt að fara niður á hnéin á þessum tveimur mínútum.
3. 80+ sit-ups á 2 mín
-handleggir eru krosslagðir yfir bringuna og fingur þurfa að snerta axlir. Olnbogar þurfa að snerta læri eða hné til að fá löglega uppsetu. Dómari stendur á tánum á meðan. Ef þörf er á hvíld á þessum tveimur mínútum verður það að vera í efstu stöðu án þess að halda sér uppi með handleggjunum.
4. 55+ froskar með hoppi á 2 mín
-byrjað er í armbeygjustöðu og þarf að hoppa jafnfætis fram og lyfta sér upp frá jörðinni. Hendur mega vera meðfram síðu. Rétta þarf nægilega mikið úr líkamanum í loftinu að lófar nemi ofar en hné. Hvíla má í þessari grein eftir þörfum.
5. 8+ upphýfingar
- fætur þurfa að hanga beinir með ökkla krosslagða og hakan þarf að fara yfir stöngina til að fá löglega upphýfingu. Enginn tímatakmörk eru á þessari grein en henni telst lokið þegar takinu er sleppt.

Hlaup og sit-ups er ég kominn með á hreint og styttist í upphýfingarnar... þá er bara að massa restina :-)

Ég vænti þess að vinir og vandamenn styðji mig með því að vera ekki að freysta mín með einhverri vitleysu Svalur
Þórmundur Helgason

Upplífgun

14. febrúar 2007 klukkan 10:03

Rósunni minni fannst síðan mín vera eitthvað dauð svo að ég er búinn að skella inn tenglum á vini og vandamenn og svo á síður sem mér finnst áhugaverðar... setti líka inn svona voða flottann teljara sem telur niður í brúðkaupið okkar Brosandi

Ég er búinn að vera veikur núna í ca 5 daga, náði mér í þessa blessuðu pest sem er víst að ganga.  Það er orðin ár og öld síðan ég hef verið veikur í svona langan tíma... yfirleitt næ ég mér bara í einhverjar tveggja daga pestir...

Þrátt fyrir veikindi þá vann ég heiman frá mér á mánudag og þriðjudag, eins og sönnum vitleysingi sæmir.  Þessi beintengin niðrí vinnu er kannski ekkert svo sniðug Glottandi.

Við Rósa skelltum okkur líka í þorrablót hjá Hjalta og Korinnu á laugardaginn (ég hefði auðvitað átt að vera heima) og hittum þar "Á pari".  Mjög gaman að hitta liðið og hlæja aðeins með (að) þeim Svalur.  Þetta er í fyrsta skipti í MJÖG langan tíma sem ég er ekki að drekka þegar við hittumst og ég held ég hafi aldrei áður gert mér grein fyrir hvað ég á rosalega háværa vini... og þau urðu bara háværari eftir því sem leið á kvöldið Hlæjandi.  En við Rósa fórum bara snemma heim þar sem mér leið ekkert rosalega vel.

Róslan byrjaði svo í Grænjöxlum í Bootcamp í gær og líst bara ágætlega á held ég.  Við verðum rosalega fit þegar við giftum okkur í júní...

Þórmundur Helgason

Nigería fer á kostum

27. janúar 2007 klukkan 17:31
http://www.mbl.is/mm/enski/frett.html?nid=1249778

Hahahahahaa... mér finnst síðasta málsgreinin best, stuttbuxurnar gleymdust heima Svalur

Annars ekkert að frétta... er búinn að eiga heima í vinnunni síðustu 2 vikur og sér ekki enn fyrir endann á því.
Þórmundur Helgason

Brandari

18. janúar 2007 klukkan 16:07
Maður einn kom móður og másandi inn á bensínstöð og spurði
-Hvað geta mörgæsir orðið stórar?
-Svona einn og tíu svaraði afgreislumaðurinn.
-Almáttugur, þá hef ég keyrt yfir nunnu.
Þórmundur Helgason

Sofi sofi sofi

15. janúar 2007 klukkan 20:24
Ég svaf svona líka hrikalega yfir mig í morgun... mætti 2 tímum of seint í vinnuna.  Það er svona þegar maður notar símann sem vekjaraklukku og hann tekur upp á því að deyja um miðja nóttina... rosalega svaf ég samt vel.

Helgin var annars bara nokkuð góð, byrjaði með lítilli samkundu heima hjá mér á föstudagskvöld þar sem nokkrir góðir drengir komu í heimsókn og drukku bjór, gin og ýmislegt annað.  Svo á laugardag var Hössi með innflutnings/afmælis partý í nýja húsinu sínu í Hafnarfirðinum, þar var drukkinn bjór, gin og ýmislegt annað.. semsagt nóg drukkið af áfengi þessa helgina.  Nú held ég að maður taki sér bara smá áfengispásu, allavega þangað til Hjalti verður með þorrablótið í næsta mánuði.

ahhh... gærdagurinn fór meira og minna í að horfa á Charmed og éta pizzu ( það eina sem ég át um helgina voru 2 stk pizzur. )
Þórmundur Helgason

Vitleysa

12. janúar 2007 klukkan 15:47
Já það er ekki öll vitleysan eins :

http://www.visir.is/article/20070110/LIFID01/70110058

Nú er maður bara einn í kotinu, kona og barn bara búinn að yfirgefa mig fram á sunnudag.  Rósa og Vignir skelltu sér í Borgarnesið í gær til að heimsækja þessa dreifara sem eru tengdaforeldrar mínir Svalur.  Í tilefni af því verður fagnað með heljarinnar veislu í kvöld - öllum er boðið.  Neinei ekki koma nema þér sé boðið.

Við Freysi bróðir ætlum að vaxa brettin okkar og setja nýju bindingarnar á mitt eftir vinnu í dag ( keypti þær fyrir síðasta vetur )... eins gott að drífa þetta af ef skíðasvæðin skyldu taka upp á því að opna skyndilega.  Verður víst að nýta þá fáu daga sem er opið, komst til dæmis aldrei á bretti í fyrra.

Jæjans
Þórmundur Helgason

Jájá einmitt

11. janúar 2007 klukkan 14:52
Fór með bílinn í viðgerð í gær.  Bað um að athugað væri með rafgeyminn og bremsurnar og svo keypti ég undir hann vetrardekk.  Aðal atriðið hjá mér var að fá nýjann rafgeymi því ég þarf alltaf að byrja daginn á því að starta kagganum með startköplum.  Anýhú þá borgaði ég ca 90.000 kall í viðgerð og dekkjakaup í gær og er enn ekki kominn með nýjann rafgeymi !!!  Það þurfti að skipta um alla bremsudiskana og setja nýja bremsuklossa í, svo var eitthvað hjól nafi hægra megin að framan ónýtt svo ég þurfti að redda því á partasölu og þeir hjá MAX 1 skelltu því í fyrir mig.  Svo eru það dekkin, ég var búinn að ákveða dekk sem kostuðu ca 8 þús. en svo var hringt í mig og dekkin undir bílnum eru svo lítil að það eina sem þeir áttu undir hann kostaði tíkall stykkið.  Endalaust gaman.

Það er eins og ég hef alltaf sagt... maður á ekki að fara með bíla í viðgerð, það er alltaf eitthvað meira að þeim en maður heldur.
Þórmundur Helgason